|
|
13.09.2006 11:21:44 / Kanibo
Aldrei hefði mér dottið í hug að geta setið í stuttbuxum ber að
ofan fyrir utan heima hjá mér á íslandi í september. En það er það
nákvæmlega sem ég er að gera núna hérna í Lund. Þetta er alveg
frábært. Held að það sé 25°C eins og er, ekki ský á himni og smá
gola til að sólin drepi mann ekki. Eini gallinn við þetta er að ég
er að verða eins og eitt stórt moskítóbit.
Ég er allur að steypast út í þessum helvítis bitum. Þær eru alveg
vitlausar í kallinn  Þetta bregst ekki....um leið og ég stíg fæti
úr flugvél sem er ekki stödd á Íslandi þá er ég bitinn. Orðið alveg
óþolandi. Fæ risaútbrot og milljón af þeim á meðan Rakel og Thelma
sæla sig prýsa með engin. Ég var að lemja eina af mér sem ákvað að
stinga mig í gegnum buxurnar (fann bókstaflega fyrir því) og
bólgnaði á 1 mínútu. Held að ég hafi ofnæmi eða er svona x-tra
viðkvæmur fyrir þeim.
Annars er það í fréttum að ég er búinn að missa 4 kg. síðan ég kom
hingað. Því þakka ég Devitio's-leysinu hérna..og kannski öllu þessu
labbi niðrí bæ með stelpunum. Við Rakel tókum einn fínan
hjólreiðartúr í gær og komumst að því að það er ekkert mál að
villast þegar maður hjólar hérna á kvöldin. Við hjóluðum með
hjólastígum sem liggja rétt hjá hraðbrautinni sem krossast til
hægri og vinstri og munaði engu að við villtumst. Þorðum eiginlega
ekki að fara í bæinn því að við vorum ekki með luktir á hjólunum og
það er víst háar sektir við því að hjóla ljósalaus á kvöldin.
Heimþráin er farin að gera ogguponsu var við sig, enda vantar manni
alla bestu vinina sína hérna og fifa-tussurnar mínar  Hvet ég
alla til að drífa sig í því að fá sér Skype, kostar ekki skít né
kanil til að hringja þá á milli.
En þangað til....
Laters
»
08.09.2006 17:07:47 / Kanibo
Hey, hó....
Þá er loksins lífið að taka sinn vanagang hérna. Ég keypti mér
"græna kortið" sem kostaði 340SEK. sem er töluvert ódýrara en í
Rvík. Gjaldskrá á bus.is segir að græna kortið(1mánuður) kostar
stórar 5000kr. og gula kortið(2vikur) 3000kr. Enginn smá peningur
fyrir strætó og samt er maður að lesa á mbl.is að nýja strætókerfið
er tapa 1 milljón á mánuði. Hvað er það? Enda er líka alltaf að
vera þróa nýjar og fatlaðri leiðarkerfi sem kosta helling af
monsu....iss piss. En núna er maður eins og innfæddur með þetta
skínandi og flotta strætó kort
Svo í dag var ég laminn....af grein. Jebb, við Rakel vorum að labba
með nýju, gömlu hjólin okkar í viðgerð í smá roki undir stóru tréi
þegar out of nowhere kemur þessi hlunka trégrein og mouthslappar
mig svona hrikalega.  Ég gat náttúrulega ekkert gert við þessu
þar sem ég hélt dauðataki í hjólið svo ég myndi ekki detta á
gangstéttina. Fullt af fólki þarna og svona til að halda þessu
svona down-low þá sagði ég ekki neitt heldur gekk bara áfram
hálfvankaður en nei....!! Rakel vældi úr hlátri þannig að allir
þurftu að horfa á okkur...helv!  Karma Rakel, karma...mundu það.
Annar er voða lítið að frétta..er ekki ennþá komin með dótið okkar
frá Samskip í Varberg, þannig að okkur vantar bunch af dóti t.d.
eins og dvd-ið okkar og allar myndirnar en það skiptir nú varla
engu þar sem við eigum ekki ennþá sjónvarp.  Samt búið að vera
núna undanfarna daga það gott veður að maður getur eiginlega ekki
hangið inni.
en hey...pizzan er orðin tilbúin í ofninum þannig að...
laters.
»
05.09.2006 21:42:46 / Kanibo
Loksins, loksins eftir langt bloggleysi getur maður sest niður og
skrifað eitthvað af viti....eða...behh...
Anyhow, nú er kappinn fluttur út til Sverige eða nánar tiltekið til
Lund. Flugið gekk ágætlega fyrir sig nema að elsku Hendrix okkar dó
næstum því, bókstaflega sko. Hann var settur í sama farangurshólf
og töskurnar, um leið og flugvélin lenti þá var hann fluttur upp á
dýraspítala. Við fengum ekki að sjá hann næstu 2 tíma þar sem hann
var settur í hitateppi því samkvæmt dýralækninum ofkældist hann
rosalega. Kuldinn í farangurshólfinu er hrikalegur og upplifði hann
-30°C sagði læknirinn.  Sem betur fer vorum við búin að troða
teppum inn í búrið og ekki skemmdi fyrir að hann er alveg hrikalega
loðinn hehe. En honum líður vel í dag þannig að þessi saga endar
vel sem betur fer.
Lífið í Lund er ágætt, við tókum bílaleigubíl fyrstu dagana og
ratar maður ágætlega hérna. Kann allavegana leiðina niður til Malmö
í IKEA.  Þetta var alveg huge stórt og við vorum þarna inni í
5 tíma, enda er það bara minimum ef þú ætlar þangað inn. hehe.
Annars er voða lítið að frétta, búið að vera hálfgert íslenskt
veður hérna síðasliðna daga. Rigning í 10mín og svo sól og svo
rigning í 10mín og svo sól.
Svo er annað bögg, það tekur u.þ.b. 2 - 3 vikur að fá kennitölu
hérna, sem þýðir að ég mun sitja á rassgatinu hérna og gera ekki
neitt þennan mánuð  Reyndar er vínbúðin í 2min labbitúr frá
íbúðinni þannig að ég fæ allavegana smá hreyfingu
Gauti (strákurinn hennar Thelmu) er reyndar helvíti duglegur að
draga mig út í fótbolta..hann segir að ég sé kominn með og stóra
bjórbumbu!! Ég var ekki sammála
»
28.07.2006 17:14:27 / Kanibo
»
20.07.2006 07:04:12 / Kanibo
Enn og aftur hef ég verið slakur við að blogga. Enda er ég búinn
að vinna seinustu 4 vikur eins og hvítum manni sæmir ekki.
Rússadjöfullinn sem er að vinna með mér fór til Rússlands til að
fylgjast með fæðingu dótturdóttur sinnar og sagðist vera "fastur" í
landinu. Eitthvað með vegabréfið hans að gera. PÖFF!! Þegar hann
loksins kom heim, nota bene...5 vikum seinna, þá var kvikindið
alveg hel-tanað vegna hitabylgju sem kom og eini staðurinn sem
hægt var að vera á var ströndin. Helv..djösans bull. Það er enginn
fastur í 5 vikur einmitt þegar það er hitabylgja
En í raun kom þetta mér til góðs...núna á maður von á feitum
launaseðli og það er alltaf ágætt. Ég og Rakel keyptum farmiðana
okkar til Köben um daginn og það er varla orðum lýst hvað manni er
farið að hlakka til að flytja út til Svíþjóðar. Núna er minna en
mánuður í þetta en við flugið er þann 15.ágúst. Við tökum kettina
líklega með í flugvélina, gefum þeim eitthvað róandi annars verður
Hendrix okkar hárlaus þegar vélin lendir í Kastrup 
jæja....hef ekki tíma í meira blogg. Þarf að halda áfram að
vinna
Laterz
»
29.06.2006 12:52:27 / Kanibo
Jæja....þá hefur maður loksins tíma til þess að blogga smá.
Vikan hjá mér er búin að vera frekar leiðinleg, vægt til orða
tekið. Ég er búinn að vinna í 53 tíma frá mánudeginum og hef
ekki séð dagsins ljós síðan um helgina og ekki hitt neina vini
Samt mest pirraður vegna þess að ég missti af nokkrum leikjum á
HM 
En ég vona nú að helgin verði eitthvað skárri en þetta
helvíti. Það er búið að bjóða mér í roadtrip með félögum frá
eyjum, þar sem við myndum þá leggja af stað á
föstudeginum og enda svo um kvöldið á laugardeginum í
sumarbústaðnum hjá mér. En nátturulega með viðkomu á einhverjum
sportbar vegna Brasilíu - Frakkland leiknum. En ég veit ekki
hvað maður gerir vegna þess að það er leikur á sunnudaginn í
Carslberg-bikarnum í hádeginu!! Hvað er það að hafa leik kl.12
á sunnudegi? Kann þetta fólk ekki að skammast sín...nei, maður spyr
sig. Vita þessir menn ekki hvaða dagur er á undan
sunnudeginum!! Djöfulsans... Við erum að reyna fá þessum leik
frestað en það er frekar ósennilegt að það gerist.
Svo er Valtýr að halda bæbæ-partý á laugardaginn fyrir
eiginkonuna sem er að fara til Kína eða Japan (it's all the same)
Var hann búinn að lofa mér nóg af pulsum - er samt ekki viss
hvað hann meinti með pulsupartýi 
En já....nú er mútta farinn til útlanda með pallhýsið og ætlar
að keyra um Evrópu í mánuð sem þýðir bara eitt.....; Fifa- og
grillpartý hvern einasta dag þennan mánuð heima.....eða svona
annanhvorn dag....póker hinn daginn 
mhm.....svo þarf ég að fara henda fartölvunni í smá viðgerð svo
maður geti bloggað eitthvað heima hjá sér
Laterz
»
15.06.2006 22:48:38 / Kanibo
Góða kvöldið, ég hef verið soldið latur við að skrifa hérna upp
á síðkastið en ég hef mjöööög góða ástæðu.....HM 2006. Þarf
ekki að útskýra neitt frekar og ég veit að allir skilja mig. Það
hefur reyndar líka verið mikið að gera hjá mér undanfarið.
Seinasta helgi var alveg ótrúlega skemmtileg; HM byrjaði á
föstudeginum með tilheyrandi bjór og djammi. Ég horfði á
opnunarleikinn í vinnunni á risaskjá og með bjór í vinstri og bjór
í hægri, ekki hægt að toppa það. Um kvöldið var svo haldið í
svona hálfskonar (ó)vissuferð sem endaði í Haukaheimilinu í
Hafnarfirðinum þar sem var boðið upp á frían bjór og Breezer. Bubbi
kom og heilsaði upp á okkur, tók nokkur vel valin lög og fór svo
bara eftir hálftíma. Stuðmenn komu reyndar líka eftir að Bubbi var
búinn að spila en þar sem ég leitaði á náðar Meistara Bakkusar
þá sá hann til þess að ég eiginlega missti af
þeim.... Þurftum við Atli að drífa okkur reyndar í 1/4 aldar
afmæli hjá honum Kobba félaga okkar þar sem hann sá um að halda
uppi fjörinu eins og honum er einum lagið 
Á sunnudeginum var tekinn þynnkubolti (eftir laugardagspókerinn)
með utandeildarliðinu Dragon þar sem leikurinn endaði með jafntefli
2-2. Stóð mig ágætlega nema þegar ég lagði upp markið fyrir
andstæðingana með prumptæklingu rétt fyrir utan teig 
Hápunktur vikunnar var á mánudeginum þegar ég fór á Roger Waters
tónleikana í Egilshöll.....frítt. Sem betur fer því það kostaði
litlar 10.000 á helvítið. Þurfti reyndar að troða mér í gæslubol
því að Bogi reddaði mér og Atla þessu fína djobbi við að vera í
gæslunni og passa liðið þarna. Þetta var nú svosem ekkert mál þar
sem maður stóð nú eiginlega bara hliðiná sviðinu og horfði bara á
þessa geggjuðu tónleika. Sándið var brjálað gott og maður fékk
alveg vænan fiðring í magann þegar þeir tóku Dark Side Of The Moon,
alveg klikkað (þú öfundar mig núna fyrir að hafa sleppt tónleikunum
ha, Silla Pilla!?!) hehe

Tók þessa mynd með símanum frekar leiðinleg gæði
en samt sem áður.......
Í vikunni unnum við í Kramerica, a.k.a Black Barbara sætan sigur
í bikarnum í Carlsbergdeildinni þar sem Siggi, a.k.a. skítakall fór
hamförum....9 mörk í 2 leikjum!!! hvað er málið spyr ég bara, en
eins og áður þá er hægt að lesa um leikinn á liðssíðunni okkar.
En jæja, þetta er komið nóg af bulli - ætla að koma mér út og fá
mér nokkra bjór svona í tilefni dagsins, þó að það sé virkur dagur.
(Er ekki alltaf tilefni í bjór hvort sem er?) 
Laterz
»
30.05.2006 12:10:40 / Kanibo
Tíminn í vinnunni líður aftur alveg hrikalega hægt og gæti
þessvegna verið að líða aftur á bak. En mig langaði nú bara að
henda inn þessum úrslitum seinustu skoðannakönnunar um besta
þynnkumatinn. Devitos var sigurstranglegastur en KFC kom stutt á
eftir. Rvík Pizza a.k.a. Eldsmiðjan fékk þarna nokkur atkvæði en
svo held ég bara að einhver hafi ætlað að vera fyndin og kjósa
Nonnabita haha.....þúst Nonnabiti ?!? hver borðar það? Neinei
Nonni er fínn, segjum það bara
En Devitos er alltaf kúl og töff þó að maður
drepst inná staðnum með hálfa pizzu í kjaftinum og restin á gólfinu
þá hugsar fólk alltaf: "Djöfull er þessi svalur, hann er að fá sér
Devitos". Takið þetta til ykkar sem eiga - þið eruð ofursvöl 
Síminn minn lenti í þvottavélinni um daginn - fattaði það ekki
fyrr en ég var búinn að leita af honum í hálftíma og þegar ég
heyrði skrítna dynki í vélinni....djöfulsans vitleysa. Anyhow, ég
fór með hann í viðgerð hjá OgVodafone þar sem ég vildi nú helst fá
númerin sem eru í honum. Á meðan ég beið eftir afgreiðslu var e-h
vitleysingur að missa sig þarna, búinn að hóta afgreiðslukonunni að
drepa hana, lemja hana í hausinn með gamla símanum sínum og ætlaði
svo að bíða eftir að hún myndi klára vinnu og elta hana heim...wtf
??
Pían nottla snögg að hringja á Fimmuna og þá byrjaði gæinn að
væla um að ef hann yrði handtekinn þá færi hann með þetta í
fréttirnar og myndi sko láta alþjóð vita að OgVodafone myndi ekki
bæta símann hans og bla bla. Pínu æstur greyið. En fljótlega komu
laganna verðir og tóku hann, ég hefði nú samt viljað einhver meiri
læti frá honum og sjá hann verða mase-aðann eða e-h solleiðis
En gaman samt engu að síður.
En aftur að símanum...ég hringdi um daginn til að ath. með
símann. Þá senda Vodafone símann í viðgerð hjá Símanum!! Hvað er
málið? Og það tekur bara einhverja viku - eina og hálfa að fá
símakvikindið aftur. Afhverju gera þeir ekki sjálfir við símana í
stað þess að senda þá til Símans sem rukkar Vodafone fyrir
viðgerðina og svo leggja OV örugglega auka á reikningin fyrir
að senda hann til Símans í viðgerð blehh Hefði átt bara að fara
beint í Símann.
Jæja...nenni ekki að röfla lengur..eða jú samt - ekki röfl. Við
í Black Barbara unnum sætan sigur á sunnudaginn eða 6-0, hægt er að
lesa um leikinn á síðunni okkar. En Dragon leikurinn minn
seinna um kvöldið gekk ekki alveg eins vel en hann fór 3-3 á
móti Nings.
Laterz
»
24.05.2006 19:45:41 / Kanibo
Heibb, þá er maður loksins kominn frá Eyjum og get ekki annað
sagt en þetta hafi verið alveg geggjað! Við fengum alveg ágætt
veður fram að seinasta degi en þá kom líka þetta klikkaða veður -
alveg vibba rok. Ég var orðinn frekar smeykur þegar við vorum að
láta allan farangurinn og eggin síga niður af eyjunni því það kom í
minn hlut að fylgjast með öllu saman á brúninni og var ég ekkert
smá hræddur um að fjúka niður bergið. En þetta gekk allt að
óskum og fengum við alveg dágóðann slatta af eggjum en ef ekki
hefði verið svona kalt einsog er búið að vera undanfarna daga þá
hefðum við fengið alveg helmingi fleiri. 

Eftir að ég kom í bæinn þá fékk ég kaggann í hendurnar loksins,
loksins eftir langvarandi þrá og vil ég þakka öllum þeim sem
lögðust á bæn á meðan aðgerðinni stóð. Ég bíð svo Thelmu
upp á pulsu og kók fyrir þetta framlag sitt í baukinn. Bíllinn
er eins og nýr og vil ég þakka hinum virta og fræga taugalækni Dr.
Gísla E frá Eyjum. Einn sá færasti í bransanum.
Í fyrradag þá festi ég mér kaup á Sýn enda ekki annað hægt því
HM 2006 nálgast hratt og munu leikirnir verða sýndir heima hjá mér
í beinni. Það verður ávallt til kaldur bjór á kantinum fyrir hvern
leik og þeim sem vilja boðið í hágæða fótboltaveislu Einnig vil
ég minna á HM 2006 Reglurnar sem eru að koma mjööög sterkt inn. Þær
eru á Black Barböru síðunni og þær MUNU koma í veg fyrir hjóna
-og sambandsslit ef farið verður rétt eftir þeim. Hvet ég
eindregið allar konur að líta á þær. http://www.blog.central.is/blackbarbara?page=viewPage&id=816219
Laterz
»
16.05.2006 14:43:50 / Kanibo
Þessi dagur líður alveg ótrúlega hægt. Seinustu 4 tímarnir eru
búnir að vera heila eilífð að líða...skrítið hvernig dagurinn getur
annaðhvort þotið framhjá en annarsvegar verið alveg óþolandi lengi.
Það er einmitt svoleiðis núna, hann gæti alveg eins verið að líða
afturábak. Þetta endar þannig að ég mun aldrei ná að klára skrifa
þessa færslu, þið ættuð þá í rauninni aldrei að geta lesið þetta,
tíminn gengur það hægt. 
Þetta er samt alveg magnaður tími sem er að fara koma á næstu
dögum. Í fyrsta lagi þá er leikur ársins á morgun s.s. miðvikudag,
Arsenal - Barcelona og ég er búinn að vera með í maganum alla þessa
viku útaf þessum leik en innst inni þá veit ég að það er algjör
óþarfi að hafa áhyggjur því að við vinnum þennann leik!
Í öðru lagi þá er kominn eggjatínslutími og fer ég á hverju ári
í Bjarnarey til að síga eftir eggjum. Þetta er alveg mögnuð
lífsreynsla, alveg ótrúlega gaman og skora ég á ykkur að koma með
mér einhverntíma í eggjatínslu. Að fara af brúninni og hanga í 200
- 250 metra hæð yfir sjónum er alveg geggjað, hvað þá að spyrna sér
af klettaveggnum og svífa alveg með berginu, tilfinningin er nær
ólýsanleg. Einnig er lyktin kannski líka nær ólýsanleg 
Á daginn þegar ekki er verið að síga þá er verið að þrífa eggin
eða gengið um eyjuna að skoða hvort fuglinn hafi verpt ágætlega og
athugaðir staðir hvar best væri að síga næst. Einnig er riffillinn
tekinn fram og skotnar nokkrar Rítur eða reynt eftir
Skúmnum. Það er ekkert sjónvarp né rafmagn nema 1
rafmagnsgeymir sem notaður er til að geta rétt hlaðið símana. Svo
er kvöldvaka á hverju kvöldi þar sem gítarinn er tekinn fram og
drukkið og sungið fram á rauða nótt....eða þangað til
gítarleikarinn deyr áfengisdauða. 
Anyhow, þá fer ég á fimmtudaginn og kem aftur heim á sunnudaginn
en missi því miður af fyrsta leik Svörtu Barböru sem er kl. 8
um kvöldið en ég hef nú engar áhyggjur af þessum leik frekar en
Arsenal leiknum á morgun
Gangi ykkur vel strákar!
Laterz
»
11.05.2006 18:23:23 / Kanibo
Jæja, eftir mánaðar veikindi þá er bíllinn
loksins að fara á stjá. Hann fer í skurðaraðgerð í dag og sendi
ég honum heillaóskir í von um að allt fari vel. Þetta er búinn
að vera ömurlegur tími síðan veikindin komu upp. Ég vissi ekki
hversu erfitt er að vera án bílsins míns fyrr en núna, bara
næstum ómögulegt. Mér líkar líka bara engan veginn við þessa
strætisvagna enda eru þeir ekkert nema dauðagildra. Alltaf e-h
árekstrar hjá þeim, keyra inní hús og á hvorn annan, ég er
skíthræddur við þá.
Hjólin eru reyndar annar kostur en það er greinilegt að ég
ofmet sjálfan mig gífurlega þegar að þeim kemur þannig að það er
betra að ég sleppi því að hjóla. Ég gæti alveg örugglega skokkað en
ég bara hreinlega nenni því ekki 
Enn þessi aðgerð sem bíllinn mun fara í er ekki ódýr en ég er
samt ánægður með að hann er að koma heim, hans hefur verið sárt
saknað. Enda hef ég notað vini og vandamenn óspart og vil ég þakka
þeim hrikaleg vel fyrir, sérstaklega honum Atla. Þú átt nokkur
skutl inni hjá mér. 
Sumarið er eiginlega bara komið og er spáð blíðskaparveðri um
helgina sem er líka eins gott því að það er óvissu"fyllerís"ferð
hjá vinnunni á laugardaginn. En það sem ég er meira að hugsa um
hvað mig langar á einhverja tónleika í sumar. Það er bara ekkert að
gerast. Manchester hátíðin var um daginn en það mættu held ég 20
manns á hana, hálfgert flopp. Roger Waters er reyndar í 12.júní en
mig langar nú eiginlega ekki á hann. Mhm... kannski bara dEUS
aftur 

Laterz
p.s. svo er reikningsnúmer hérna
vinstra megin fyrir þá sem vilja hjálpa nærri dauðstöddum
bílnum
»
09.05.2006 21:43:40 / Kanibo
Jæja...þá eru komin úrslit fyrir seinustu
skoðanakönnun;
Þá er ljóst að þessi síða á eftir að verða nýjasta
þjóðargersemi íslendinga og munu skrif mín hérna
verða hugleiðingar af bestu gerð en ekki e-h bjórdagbók fyrir
vini mína og mig. No-sörríbob, hér mun nefnilega forsetinn
leggja sína leið á sínum daglega "blogg-rúnti" og fá hugmyndir
hvernig ætti að stjórna þessu landi. En ég verð nú samt aðeins að
segja ykkur frá helginni 
Um helgina var fyrsti æfingaleikur Black Barböru og fengum við
þetta frábæra veður til að spila á Fylkisvellinum í Árbæ. Leikurinn
byrjaði nú ekki sem best en þegar leið aðeins á þá byrjuðu mörkin
að hrúgast inn. Reyndar ekki fyrr en Valtýr tók sér pásu og fékk
sér sundsprett í ánni fyrir neðan. En leikurinn endaði 5-2 fyrir
Barböru menn eins og við mátti búast því með þessi ofurmenni eru
allar götur færar. Auðvitað er svo hægt að lesa allt
um leikinn á Black Barböru síðunni en hún er linkuð hérna
vinstra megin Eftir leikinn var tekinn stefnan á
Árbæjarlaug nema Valtýr beið í bílnum á meðan því hann var búinn að
baða sig.
Um kvöldið var grillað heima hjá mér og hefur aldrei neinn séð
aðra eins grilltækni og fylgdust menn með mér allan tímann í von um
að fá að læra kannski e-h. Fengum við svo ekki bara besta veður í
heimi til og fór hitinn uppí heilar 12-13°c. Ég held meiraðsegja að
ég fékk smá brúnku í leiðinni. Eftir mat var tekinn póker og svo
haldið niður í bæ.

Já, það var sko fjör á
Njálsgötunni
Það er búið að setja inn myndir frá þessum degi og
einnig nokkrar myndir frá afmælinu hans Jónasar sem var seinustu
helgi.

Laterz
»
03.05.2006 19:14:44 / Kanibo
Hellú.....búið að vera brjálað að gera hjá mér undanfarna daga
þannig að ég hef haft lítinn tíma til að blogga. En þar sem ég er í
vinnunni núna (nenni aldrei að gera neitt) þá get ég reynt
að æla einhverju úr mér.
Helgin var bara sú fínasta. Jónas kallinn átti afmæli á
föstudaginn og eldaði fyrir mannskapinn, s.s. Mig, Dodda, Davíð,
Stebba, Sverri og Lilla. Hann galdraði fram þennan geggjaða
pastarétt sem ég mun seint gleyma....mmm, takk fyrir mig. Stebbi
bakari bjó svo til eftirréttinn í vinnunni sinni sem var svona
súkkulaði gums eins og maður fær á veitingarstöðum og mangó-ís!!
Bara töffarastælar í honum. Svo var það bara bærinn eins
og okkur er einum lagið.
Laugardagurinn fór í fótboltaæfingu hjá Barböru. Siggi var
minntur tvívegis á að kúka ÁÐUR en hann kæmi þannig að þetta
varð að góðri æfingu. Um kvöldið var tekinn póker þar sem aðeins
alvöru karlmönnum var leyft að vera með. Reyndar kom upp vafamál
með Valtýr en þar sem hann gat skutlað mér þá fékk hann að vera
með. En auðvitað boðaði þetta ekkert nema vandræði því að
Valtýr postulínsdúkka var orðinn fullur eftir einn sopa og
náði að hella yfir allt pókerborðið og drakk hann
bara vatn það sem eftir var kvöldsins. Atli komst ekki í spilið því
það var verið að hýða hann með svipu sérpantaða frá Ísafirði en
hann kemur bara næst Kvöldið endaði svo á bar 11 eins og
vanalega þar sem Steini átti stórleik og valtaði gjörsamlega yfir
mig Valtý og Kobba.
Svo er annað... Ég var að fá að vita það að ég er með leyfi til
að spila golf á þessum geggjaða golfvelli í Svínadal (þar sem
Vatnaskógur er) fyrir mig og vini og ekki skemmir fyrir að
sumarbústaðurinn okkar er þarna hliðiná. Við verðum að fara plana
ferð uppí bústað núna e-h tíma á næstunni með smá bjór og taka
kylfurnar okkar með, hvað segið þið um það
strákar?? Látiði mig vita 
Laterz
»
27.04.2006 21:49:11 / Kanibo
Ég var að spá að reyna koma mér í form núna á næstunni. Ekki það
að ég er ekki helmassaður, bara þolið er alveg í mínus hjá mér. Ef
dæmi er tekið þá hjólaði ég í vinnuna um daginn því að bílgreyið er
lasinn með smá hita. Ég gíraði mig upp, setti á mig húfu og fékk
hjólið hjá litlu systur lánað og hjólaði af stað með bakpoka
reyndar því það var æfing hjá mér um kvöldið. Ég var búinn að
gleyma því hversu ótrúlega er gaman að hjóla - þarf að fara gera
þetta oftar 
Allavegana...þegar ég mætti upp í vinnuna sem er rétt hjá
Holtagörðum þá var ekki að finna þurran blett á mér. Kræst hvað ég
var bullandi sveittur og þreyttur en á hinn bóginn ótrúlega stoltur
af sjálfum mér fyrir að hafa hjólað þessa 20km. Ég labbaði inná
skrifstofu með sólheimabrosið alla leið og ekkert smá ánægður með
sjálfan mig. Sagði strákunum að ég hafði hjólað alla þessa leið í
vinnuna og þessvegna væri ég svona bullandi sveittur. Eina sem ég
fékk á móti var þessi fkn hlátur og svona aumingja brandara.
"hahahaha, þetta eru ekkert 20km. auminginn þinn. Svona mesta lagi
4-5km." WTF?? 4-5? Ég hélt nú ekki kallinn minn,
ég svitna sko ekki svona fyrir 4-5km. Þannig að ég tjékkaði á þessu
og viti menn; þetta eru ekki nema 4 og hálfur kílometer. Ég
er brjálaður!! 
Þetta þýðir að ég verð bara að gjöra svo vel að drulla mér í
form fyrir boltann í sumar
Annars er nú voða lítið að frétta af mér, er reyndar að kíkja í
afmæli hjá Jónas á föstud. Hann mun elda einhvern dýrindismat ofaní
okkur þannig að þetta ætti nú að vera gaman Heyrðu já, svo
er komin Black Barbara official heimasíða þar sem þið getið fylgst
með leikjunum okkar í Carlsbergdeildinni í sumar. Einnig er þar
líka tengill á Dragon liðið sem ég mun einnig reyna að spila með í
utandeildinni.
Þetta er nú samt komið fínt í bili,
Laterz
»
26.04.2006 00:49:37 / Kanibo
Jæja, Arsenal fara í úrslit á móti Barca í Meistaradeildinni,
jeihh. Þó að þetta hafi nú verið mjög lélegur leikur hjá Arse,
held að leikurinn hafi farið 11 - 0 í skotum á mark fyrir
Villareal, þá varði Lehmann alveg magnþrungið víti á 88.mín og
er maður leiksins að mínu mati. En það gengur ekki að spila svona
eins og við gerðum á móti Barca...engan veginn. 
Helgin var ágæt, fór í bíó á Running Scared á föstudaginn og
fyrsti edrú föstud. í laaaaangan tíma. Þetta var nú ágætis
afþreying og fengum við bestu sætin í salnum á fremsta bekk, lengst
til vinstri og vaknaði ég með vænan hálsríg daginn eftir.
Laugardagurinn var miklu betri, horfði á L.pool leikinn og fór
svo á leikrit sem kallast Animania. Þetta var hálfskonar
spunaleikrit en samt ekki, leikendur fóru mikið út í sal, gerðu
einhvern usla og fékk ég m.a. 2 væna og rennblauta svampa í
andlitið. Frábært!
Mér hefur samt aldrei liðið jafn furðulega og fyrir leikritið.
Þegar við vorum að bíða eftir að hleypt yrði inní sal, þá voru
leikarar meikaðir eins og látbragðsleikarar og gengu þarna
um. Anyhow, einn þeirra kom upp að okkur eins og hann
ætlaði að spjalla við okkur en stóð svo bara og starði á mig.
Djöfull leið mér illa, bara virkilega illa, roðnaði og
svona, gat ekki fundið neitt til að segja við Rakel og þetta endaði
bara með því að ég horfði bara svona til hliðar, leit aðeins í
dagskrána og sagði svo við Rakel: "ég veit bara ekkert um
hvað þetta leikrit er, ha?" Fíflið hélt svo bara áfram að stara á
okkur. Ég var farinn að svitna, bara við það að hugsa um hvað ég
ætti að segja næst Meika ekki svona
álag
Eftir það var farið að svolgra í sig með honum Atla og fifa
stúderaður aðeins. Hef nú ekkert merkilegt að segja frá því. Við
litum aðeins í heimsókn á 11 eins og vanalega. B.t.w. að fá sér
tequilastaup með lime er EKKI eins og að fá sér tequilastaup og
sítrónu
Laterz
»
Síður: 1 2
|
|